Slideshow

Allskonar Næs

Allskonar Næs er stofnað af Unnari Ara, myndlistarmanni og hönnuði. Lítil heildsala og verzlun sem framlenging á vinnustofunni. Skemmtilegar vörur sem kæta og fegra heimilið.

Vinnustofan og Allskonar Næs

Vinnustofan sem eignaðist annað líf

Lífið á vinnustofunni getur verið fjölbreytt. Hér blandast saman hönnun, myndlist, matur, drykkur og allskonar næs hlutir.

Hugmyndin um Allskonar Næs hafði lengi verið að gerjast í hausnum á mér, að flytja inn hágæða vörur sem mér þykja fallegar, með smá karakter eða einfaldlega skemmtilegar og selja þær beint úr vinnustofunni. Að skapa stað þar sem ég gæti unnið að myndlistinni og skapað næs safn af vörum sem mér þykir skemmtilegar.

Ég hef alltaf haft gaman af góðum mat og drykkjum, fallegum umbúðum og hlutum sem hafa skemmtilega sögu. Allskonar Næs er leið til að blanda þessu öllu saman undir einu þaki.

Vinnustofan, lítil verslun og síbreytilegt úrval af hlutum sem gera hversdaginn aðeins litríkari.

Byrjum á þremur vörumerkjum, UPUP, Yiya & Friends og AMIAMI.

Endilega vertu í bandi ef þú vilt bjóða uppá þessar vörur í þinni verslun

Skoða vörur