Terms of service
Fyrirvari og upplýsingar
Allskonar Næs leggur áherslu á að allar upplýsingar á vefnum séu réttar og uppfærðar. Þrátt fyrir það geta komið fyrir innsláttarvillur, rangar myndir, verðbreytingar eða breytingar á vörulýsingu, innihaldi, umbúðum og framboði án fyrirvara.
Myndir eru birtar til viðmiðunar og útlit vöru getur verið frábrugðið því sem sést á vefnum. Upplýsingar frá framleiðendum geta einnig breyst. Viðskiptavinir með ofnæmi, óþol eða sérstakar mataræðisþarfir skulu því ávallt lesa innihaldslýsingu og merkingar á umbúðum vörunnar áður en hennar er neytt. Hafðu samband við okkur fyrir kaup ef frekari upplýsinga er þörf.
Öll verð eru birt með fyrirvara um villur, breytingar á opinberum gjöldum, gengi, flutningskostnaði og öðrum þáttum sem kunna að hafa áhrif á verðlagningu. Allskonar Næs áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar verð- eða skráningarvillur og, ef þörf krefur, afturkalla eða hafna pöntun sem byggist á slíkri villu. Viðskiptavinur verður þá upplýstur og greiðsla endurgreidd að fullu ef hún hefur þegar farið fram.
Pöntun telst ekki endanlega samþykkt fyrr en hún hefur verið staðfest af Allskonar Næs. Allar pantanir eru háðar framboði og áskilinn er réttur til að takmarka magn eða hætta við afhendingu vöru sem er uppseld eða ekki lengur fáanleg.