VIN ROSÉ
Fallegt rósavín.
Best borið fram vel kælt. Stökkt, frískandi og þurrt.
Framleitt í Suður-Frakklandi af áttundu kynslóð vínræktenda, sem eru meðal frumkvöðla í sjálfbærri og lífrænni ræktun.
Dásamlegt fólk, frábært vín og góðar stundir.
1,5 lítrar = 2 hefðbundnar vínflöskur = 10 glös
BERIN
Rósavínið okkur er frískandi blanda úr 60% Syrah og 40% Malbec.
Þrúgurnar af hvorri tegund eru pressaðar strax eftir uppskeru og síðan gerjaðar í stuttan tíma við um 16°C. Vínunum er svo blandað saman áður en þau eru sett á umbúðir.
Vínviðurinn vex í jarðvegi úr kalksteini, leir og möl og nýtur áhrifa frá þremur ólíkum terroir-svæðum innan Limoux: Miðjarðarhafssvæðinu, úthafssvæðinu og Haute Vallée/Pýreneafjöllum.
Víngarðarnir liggja í um 260–365 metra hæð yfir sjávarmáli, við rætur Pýreneafjalla, skammt frá landamærum Spánar. Vínrækt á svæðinu nær aftur til tíma Grikkja og Rómverja og enn má sjá rómverskar brýr og vatnsveitur í landslaginu.

Árgangur
2024
Uppruni
Limoux AOP, Suður-Frakkland
Þrúgublanda
45% Syrah, 35% Malbec, 20% Cinsault
Alkóhól
12,1% vol.